Um Studio Dan
Í ágúst mánuði 1987 opnaði Studio Dan, fyrstu líkamsræktarstöðina á Ísafirði, að Hafnarstræti 20. Að þessu framtaki stóðu hjónin Stefán Dan Óskarsson og Rannveig Hestnes. Alla tíð síðan hefur Studio Dan verið rekið á sama stað. Tæpu ári eftir opnun kom upp bruni og skemmdist húsnæði og innanstokksmunir mikið við þennan bruna. Í kjölfarið fékk Stefán Dan taugaáfall en hristi það af sér og byggði upp Studio Dan aftur frá grunni og tókst mjög vel til.
Þeir sem hafa stundað æfingar í Studio Dan kannast allir við þá framkvæmdagleði sem hefur alltaf haldist við Stefán. Sífellt var verið að laga og gera betur og stækkaði húsnæðið ört og í allar áttir. Nærliggjandi hús voru tekin inn í starfsemina og önnur byggð, og má þar nefna skvass-salinn fræga þar sem mörg mót voru haldin. Státuðu Vestfirðingar af nokkrum öflugum leikmönnum í þeirri grein.
Á haustinu 2008 hefur enn og aftur húsnæðið verið tekið í gegn og nú sem um munar. Skipt hefur verið út öllum tækjum fyrir ný og hefur húsnæðið sjálft tekið stakkaskiptum. Hefur allt gólf verið parketlagt, nýir sturtuklefar karla og kvenna urðu að veruleika, loftræsting hefur verið sett í húsið og einnig ný afgreiðsla og andyri. Stefnt er á að uppfæra ljósabekki og taka húsið í gegn á efri hæð í framhaldinu.
Studio Dan hefur nýst okkur öllum íbúum í Ísafjarðarbæjar að einhverju leyti, hvort sem það erum við sjálf sem æfum þar, börnin okkar eða barnabörn. Flest öll íþróttafélögin nýta sér Studio Dan að einhverju leyti og er það gott, því almenn líkamsrækt er undirstaða allra íþrótta. Svo má ekki gleyma því að Stefán hefur haldið uppi starfi í nágrannabyggðunum hér í kringum Ísafjörð, með spinning og ljósabekki.