A A A
11.12.2008 - 09:39

BCAA Nanostack 120 hylki

  • 6000mg af BCAA í dagsskammti!
  • Öflugasta formúlan sem fáanleg er
  • Hámarkar endurbata eftir æfingar
  • Nauðsynlegt fyrir uppbyggingu (anabolism)
  • Vísindalega sönnuð hlutföll 2:1:1
  • Míkrókrystölluð vinnsluaðferð - hámarks upptaka
Tilboð : 4200
Verð : 4900
09.12.2008 - 15:48

Lyftiđ lóđum og losniđ viđ líkamsfitu


6
Lóðaþjálfun ætti að vera þungamiðja æfingaáætlunar þinnar. Lóðaþjálfun eykur fitusnauðan vöðvavef, sem er mikilvægastur allra vefa til að auka efnaskiptin og brenna fleiri hitaeiningum. Samkvæmt rannsóknarhóp frá háskólanum í Maryland mun 6 mánaða lóðaþjálfun auka hvíldarefnaskiptin um 7%. Lóð eru sérstaklega mikilvæg eftir því sem þú eldist. Eftir þrítugt missirðu um 150 grömm ár hvert af vöðvavef. Það hægir á efnaskiptunum því að ½ kg af vöðvum brennir um 30-50 hitaeiningar á dag. Reyndu að lyfta 2-3svar í viku, lágmark 1 sett með 10 endurteknum , 8-10 æfingar . Gerðu meira ef þú hefur tíma og hvöt.
01.12.2008 - 08:01

Besta ţjálfunarálag - Hratt eđa hćgt?

Fjöldi fólks hefur þá villutrú að besta leiðin til að brenna fitu sé með að æfa á mjög rólegu álagi í mjög langan tíma. Þessi staðhæfing kom frá Skandinavískum rannsóknum á sjöunda áratugnum sem sýndi að líkaminn notaði meiri fitu þegar æft var mjög rólega en þegar æft var ákaft. Sumir túlkuðu þessa rannsókn þannig að betra væri að æfa mjög rólega til að losna við fitu. Þessi túlkun er bull! Þú losnar við fitu með því að brenna fleiri hitaeiningum en þú borðar. Þú brennir margfalt fleiri hitaeiningum með því að æfa af meiri ákefð heldur en að æfa mjög rólega. Líkaminn brýtur ekki niður fitu eina og sér heldur er fituniðurbrot samtvinnað við kolvetna-og proteinniðurbrot. Þó að þú myndir nota meiri fitu á meðan þú æfir jafnast "eldsneytisbyrgðirnar" miðað við orkunotkunarhlutfall. Áköf æfinga leiðir af sér meiri brennslu hitaeininga og fitu eftir að æfingunni er lokið. Þannig að til þess að losna við fitu skaltu æfa ákaft og brenna fleiri hitaeiningum.
28.11.2008 - 14:41

Hafđu “holla fitu” hluta af matarrćđinu

Í næstum því 20 ár hefur verið sagt við okkur að minnka við okkur hitaeiningar og fitu þegar við erum að reyna að létta okkur. Hins vegar sýna nýjar rannsóknir mikilvægi þess að bæta við hollum einómettaðri fitu (sem þú finnur í ólívuólíu, canaola olíu og hnetum) í matarræðið. Fólk á svokölluðu “Miðjarðarhafsmatarræði” virðist lifa lengur og hefur færri offituvandamál Rannsókn frá Brigham og Kvennaspítalanum í Boston staðfesti mikilvægi þessa. Sextíu sjúklingar borðuðu hitaeiningalítið matarræði sem saman stóð af annað hvort nánast engri fitu eða hæfilegu fitumagni. Báðir hóparnir misstu jafn mikla líkamsþyngd á 6 mánuðum en hins vegar eftir 12 mánuði höfðu sjúklingarnir sem borðuðu hæfilega mikla fitu misst 4 kg en þeir sem voru á fitusnauða matarræðinu voru búnir að bæta allri þyngdinni á sig aftur og 2,5 kg til viðbótar. Eftir 18 mánuði voru 54% af þeim sem höfðu borðað hæfilegt magn af fitu enn á áætlun en aðeins 20% af hinum hópnum. Þeir sem neyttu hæfilega af fitu, misstu hlutfallslega mest af líkamsfitu. Fylgið “Miðjarðarhafsmatarræðinu” með litlum skammtastærðum af fitu (15-20%) til að léttast. Máltíðirnar bragðast betur og þú nærð árangri til lengri tíma.
24.11.2008 - 11:05

Losnađu viđ líkamsfitu međ trefjaríku matarrćđi


6
Ef þú vilt létta þig, skaltu borða mat sem hefur lágt hlutfall fitu en hátt trefjainnihald. Tuttugu og fimm vísindalegar rannsóknir unnar af Drs. M. Yao og Susan Roberts í Tufts háskólanum sýndu að fólk sem borðaði mikið af trefjum og lítið af fitu misstu þrisvar sinnum meira af fitu en þeir sem minnkuðu bara við sig fituna. Bandarískt matarræði til dæmis er hátt í fitu og lágt í trefjum. Þeir borða þennan feita mat af því að hann bragðast vel - flestir kjósa að borða steik eða kökusneið heldur en t.d. sellerí. Vísindamennirnir komu með nokkrar ábendingar til að losna við líkamsfitu með tilliti til auknu trefjamagni og minni fitu. Borðið mat með hátt hlutfall af vatni, eins og t.d. ávexti og grænmeti ásamt nokkrum skömmtum af mat með heilum höfrum. Verið varkár á mat með leynt fituinnihald - hitaeiningar eru þá fljótar að hrannast upp. Prófaðu að taka trefjar(sem fæðubótarefni) og drekktu eitt glas af vatni með um 15 mínútur áður en þú borðar hverja máltíð. Trefjarnar binda vatnið og gefa þér meiri fyllingu.
Námskeiđ
Tímaplan Studio Dan
Boozt bar!
Vefumsjón