A A A
28.11.2008 - 14:41

Hafđu “holla fitu” hluta af matarrćđinu

Í næstum því 20 ár hefur verið sagt við okkur að minnka við okkur hitaeiningar og fitu þegar við erum að reyna að létta okkur. Hins vegar sýna nýjar rannsóknir mikilvægi þess að bæta við hollum einómettaðri fitu (sem þú finnur í ólívuólíu, canaola olíu og hnetum) í matarræðið. Fólk á svokölluðu “Miðjarðarhafsmatarræði” virðist lifa lengur og hefur færri offituvandamál Rannsókn frá Brigham og Kvennaspítalanum í Boston staðfesti mikilvægi þessa. Sextíu sjúklingar borðuðu hitaeiningalítið matarræði sem saman stóð af annað hvort nánast engri fitu eða hæfilegu fitumagni. Báðir hóparnir misstu jafn mikla líkamsþyngd á 6 mánuðum en hins vegar eftir 12 mánuði höfðu sjúklingarnir sem borðuðu hæfilega mikla fitu misst 4 kg en þeir sem voru á fitusnauða matarræðinu voru búnir að bæta allri þyngdinni á sig aftur og 2,5 kg til viðbótar. Eftir 18 mánuði voru 54% af þeim sem höfðu borðað hæfilegt magn af fitu enn á áætlun en aðeins 20% af hinum hópnum. Þeir sem neyttu hæfilega af fitu, misstu hlutfallslega mest af líkamsfitu. Fylgið “Miðjarðarhafsmatarræðinu” með litlum skammtastærðum af fitu (15-20%) til að léttast. Máltíðirnar bragðast betur og þú nærð árangri til lengri tíma.
Námskeiđ
Tímaplan Studio Dan
Boozt bar!
Vefumsjón