A A A
01.12.2008 - 08:01

Besta ţjálfunarálag - Hratt eđa hćgt?

Fjöldi fólks hefur þá villutrú að besta leiðin til að brenna fitu sé með að æfa á mjög rólegu álagi í mjög langan tíma. Þessi staðhæfing kom frá Skandinavískum rannsóknum á sjöunda áratugnum sem sýndi að líkaminn notaði meiri fitu þegar æft var mjög rólega en þegar æft var ákaft. Sumir túlkuðu þessa rannsókn þannig að betra væri að æfa mjög rólega til að losna við fitu. Þessi túlkun er bull! Þú losnar við fitu með því að brenna fleiri hitaeiningum en þú borðar. Þú brennir margfalt fleiri hitaeiningum með því að æfa af meiri ákefð heldur en að æfa mjög rólega. Líkaminn brýtur ekki niður fitu eina og sér heldur er fituniðurbrot samtvinnað við kolvetna-og proteinniðurbrot. Þó að þú myndir nota meiri fitu á meðan þú æfir jafnast "eldsneytisbyrgðirnar" miðað við orkunotkunarhlutfall. Áköf æfinga leiðir af sér meiri brennslu hitaeininga og fitu eftir að æfingunni er lokið. Þannig að til þess að losna við fitu skaltu æfa ákaft og brenna fleiri hitaeiningum.
Námskeiđ
Tímaplan Studio Dan
Boozt bar!
Vefumsjón